Klandur og flandur
29.04.2006 18:48:39 / maren

Morðmál á Deildartúni 5

Ég sat í sakleysi mínu á Héraðsbókasafni Akranes, grunlaus um þá dramatísku atburði sem voru við það að gerast þegar síminn hringir. Ég svara. Á hinni línunni var vægast sagt hysterísk kona. Hún tjáði mér það að það lægi lík í blóðpolli sínum á eldhúsgóflinu. Hjartað mitt tekur kipp.. "ég er að koma" segi ég og þýt út.

Þegar ég mætti á the crimescene tók á móti mér fínasta angan, fnykur öllu heldur, fnykur sem við vorum reyndar búnar að taka eftir í gær.. og veiða ýmsa hluti úr ísskápnum og fleygja í ruslið í þeirri von um að hann myndi hverfa, án árangurs.

Ég labba inn í eldhús og þar blasir það við mér.. líkið.. útbólgnað og rotið!! Eina sem ég get sagt er "ojjjjjjjjj.. djöfulsins ógeð!"

Í þeim töluðu orðum gengur húsráðandinn inn um dyrnar, en hann var vinsamlegast beðinn um að rölta sér niður, en nánari útskýringar á neyðinni fékk hann ekki. Grunlausu greyinu var bent í hornið á eldhúsgólfinu og fékk vægast sagt nett áfall. "Hvað gerðist hér?" heyrist í honum.. við höfðum engin svör.

"Þú verður að taka hana!" heyrist og húsráðandinn blæs út testósterónið.. Fyrst reynir hann að troða sér í latexhanska sérsniðna fyrir konur með litlar hendur.. en það var árangurslaust. Svo nær hann í búðarpoka og veiðir kvikindið í hann.. þvílíkt og annað eins hugrekki hefur ekki sést í aldir alda ;)

Mörgum spurningum er ósvarað... Hvernig komst kvikindið inn? Hvernig endaði það í blóðpolli á eldhúsgófinu? Hver er morðinginn? Hvað í fjandanum er þetta búið að vera þarna lengi???

Fylgist æsispennt með næsta þætti af Morðmáli á Deildartúni 5


» 24 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 22:13:25 / maren

24 hlutir

1. Aldrei í lífi mínu: myndi ég nota eiturlyf.. það er það heimskulegasta sem ég veit 
2. Þegar ég var fimm ára: var ég í kattavinafélaginu
3. Menntaskóla árin voru: þroskandi og skemmtileg
4. Ég hitti einu sinni: Claudiu Schiffer.. á mynd af okkur og allt! ;)
5. Einu sinni þegar ég var á bar: Kynnti ég Rakel sem vin minn hann Halldór
6. Síðastliðna nótt:  var ég að Dj-ast
7. Næsta skipti sem ég fer í kirkju: Verður í brúðkaupinu hjá Rakel og Bjarna
8. Þegar ég sný hausnum til vinstri sé ég: Sjónvarpið
9. Þegar ég sný hausnum til hægri sé ég:  Glugga
10.Þegar ég verð gömul/gamall: ætla ég að vera krumpuð og ástfangin.. með fullt af litlum snúllum hlaupandi í kringum mig :)

11. Um þetta leyti á næsta ári: verð ég aaaalveg að útskrifast, nýkomin frá Tenerife og aaaalveg að komast til Mexico :haha:
12. Betra nafn fyrir mig væri: Snillingur ;)
13. Ég á erfitt með að skilja: ARA og stundum mig sjálfa ;)
14. Þú veist mér líkar vel við þig ef: .. ef mér líkar vel við þig

15. Fyrsta manneskjan til að eignast barn í þínum vinahóp væri: Meira spurning um hver verður síðastur hehe
16. Farðu eftir ráðum mínum: Ekki hætta að láta þig dreyma.. en mundu samt að það geta ekki allir draumar ræst
17. Uppáhalds morgunmaturinn minn er: Skinkuhorn og kókómjólk
18. Afhverju myndir þú hata mig: Hatur er sterkt orð.. og fyrirgefning er besta dyggðin.. myndi held ég ekki hata neinn nema hann gerði einhverjum sem ég elskaði mein (dráp, kynferðislegt ofbeldi eða eitthvað álíka)
19. Ég myndi stoppa mitt eigið brúðkaup ef: myndi aldrei gera það.. enda gengur maður ekki upp að altarinu nema maður meini það sem maður er að gera

20. Heimurinn mætti alveg vera án:  Kjarnorkuvopna
21. Ég myndi frekar sleikja svínsrass en að:  sleikja rassinn á skunki..

22. Bréfaklemmur eru nytsamlegri en:fullt af fólki...
23. Ef ég geri e-ð vel, er það: þess virði
24. Myndir sem þú fellir tár yfir eru:  Notebook, Once were warriors, Crash, La vita e bella.. allar ótrúlega áhrifaríkar á sinn hátt

» 3 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 11:30:02 / maren

Málsháttapæling..

Ég fékk 2 páskaegg.. og þar af leiðandi 2 málshætti. Annar var "Vel skal vanda það sem lengi á að standa" og hinn var "Kenna má fyrr en klipið er til beins".. Er einhver að vinna hjá Nóa Síríus sem þekkir mig eða?? What the fuck! hahaha

Annars á ég mér mína uppáhaldsmálshætti og þeir eru allir frekar fyndnir, hálf klúrir og kvikindislegir.. but hey.. that's just me hehehe.. hef þó aldrei fengið neinn þeirra í páskaeggi ;)

- Tíkur tvær um eitt bein og píkur tvær um einn svein eru sjaldan einhuga í þeirri grein (minnir að þetta sé svona.. allavega eitthvað i þessum dúr)
- Það er margt draslið sem maður myndi henda ef maður væri ekki hræddur um að einhver annar myndi hirða það
- Those who hesitate masterbate
- Fátt smátt gerir lítið eitt eða ekki neitt
- Illu er best ólokið
- Betra er autt rúm en illa skipað
- Betra er að vera eltur en úreltur
- When the going gets tough.. the tough get going ;)

Dreymdi í fyrrinótt að ég var bitin af snák og hélt ég væri að deyja.. svo komst ég að því að hann beit mig bara í fótinn og það var víst ekki lífshættulegt.. Ása kom til bjargar í draumnum, var nefnilega búin að biðja hana um að búa til annað eintak af mér ef ég myndi deyja því ég ætti eftir að gera svo margt!! hahaha djöfull getur maður verið steiktur!!

Hjartað mitt slær helmingi hraðar í dag en aðra daga..

Allir á ball í kvöld.. Ingi og Einar eru meira að segja að spá í að koma ;)


» 13 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 16:26:19 / maren

Tjútttt

Skelltum okkur í höfuðborgina í gær vinkonurnar, kíktum í partý sem haldið var í skonsunni hans Marons þar sem komist var að því að Vodka í Magic er stórhættulegur drykkur.. og Hadda tókst að týna skónum sínum inni í eldhúsi...

Kíktum svo í bæinn.. eltum partýið á Pravda (eða partýið elti gestgjafann hehehe) þar sem var mikið dansað, drukkið og drukkið og dansað :)

Svo reyndum við að fara á Ellefuna en það var svo mikil röð að við nenntum því ekki. Enduðum kvöldið svo á Nonnabitum... mmmm hvað pepperonibáturinn var góður!!

Þegar við mættum svo í leigubílaröðina ákváðu leigubílarnir bara að hætta að ganga en það kom pimp á fötunni sinni og bjargaði okkur.. var án efa eftirminnilegasti partur kvöldsins.. Heiðar var með yfirheyrslu og Heimir lá í kasti.. og ég gelti bara og það skildist ekkert sem ég sagði... svo var gerð heiðarleg (eða heiðarsleg) tilraun til að selja mig hahahaha Bara fyndið :)

Setti inn nokkrar myndir.. þær eru bara úr partýinu þar sem ég gleymdi svo vélinni það sem eftir var nætur..


» 10 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 10:49:06 / maren

Af líkamshárum...

ég fór allt í einu að spá í þessu í gær.. Eru menn sem eru með mikil líkamshár líklegri til að missa hárið af höfðinu??

» 43 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 17:03:19 / maren

Hugleiðing..

Verður maður ekki ógeðslega mjór ef maður borðar geðveikt mikið óhollt og fær maður ekki svívirðilega háar einkunnir ef maður er latur að læra??

» 5 hafa sagt sína skoðun

29.01.2006 12:09:17 / maren

Where's the girl I used to know

Ég komst að því í morgun þegar ég vaknaði að ég er orðin eitthvað svo léleg...

Fór í spil í gær og það var ógeðslega gaman (taka ber fram að ég, Þura og Elvis unnum spilið hehehe)... fékk mér nokkra bjóra í góðum félagskap og svo þegar gengið fór út á lífið... þá fór mín bara heim!!

Þetta er náttúrulega ekki alveg í lagi! Já og þegar ég kom heim fór ég bara á netið og tók upp á því í ölæði mínu að fara að kommenta ógeðslega fyndnu á færslur hjá fólki (var ekki alveg jafn fyndið þegar ég vaknaði.. hljómaði meira svona eins og ég væri geðveikt bitur hahahaha)

Allavega... ef einhver hefur rekist á Djamm-Maren, nennir sá hinn sami að senda hana heim til sín.. hennar er saknað!


» 11 hafa sagt sína skoðun

18.12.2005 00:08:53 / maren

Myndir

Jæja.. komnar myndir frá próflokadjamminu á myndasíðuna mína... var ekkert rosalega dugleg með myndavélina á ballinu.. en skemmtilegar myndir engu að síður ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.12.2005 22:30:02 / maren

10,5 tímar í próf

og ég kann ekki nokkurn skapaðan hlut! :(

Ég held ég fari bara heim og leggist undir feld, hlýt að vakna með öll svör á reiðum höndum eins og Geiri goði stórvinur minn... uhhh or not!

Ætli maður neyðist ekki bara til að taka 3 tíma svefninn aftur.. hann reyndist ágætlega fyrir síðasta próf.. annars þá eru það bara 6000 kallinn sem blífar (endurtektargjaldið)

Þetta verður miklu lengra en upp á bak... 8|


» 66 hafa sagt sína skoðun

13.12.2005 19:19:02 / maren

3 down.. 1 to go

Jæja þá fer þessi törn að taka enda.. loksins! :D

Var í prófi í geðhjúkrun í dag og það gekk bara nokkuð vel, svo er hjúkrun fullorðinna á fimmtudaginn.. og þá er þetta búið :)

Er annars í mestu vandræðum með mig þessa dagana, pantaði mér tíma í plokkun og litun í fyrsta skipti á ævinni og er að fara á fimmtudaginn efitr próf, þannig að núna er ég bara að "safna" augabrúnum og er farið að svipa ískyggilega mikið til varúlfs! 8|

Þannig að ef þið sjáið einhverja konu ráfa um götur bæjarins, illa til reika, með bauga niður á tær og augabrúnir eins og Bjarni Fel.. þá er líklegt að ég sé þar á ferð! hahaha

Lag dagsins: Luka Bloom - Bad (U2 cover)


» 9 hafa sagt sína skoðun

12.12.2005 15:23:02 / maren

Skíðadrottningin ég

Fann þessa stórglæsilegu mynd á ljósmyndavefnum... það verður ekki tekið af manni að smekkleikinn er og hefur ávallt verið hafður í fyrirrúmi hér á bæ.. litasamsetningin virðist algjörlega útpæld (flottar bleiku lúffurnar maður)! Og það er náttúrulega möst að vera með hvítan varalit þegar maður fer á skíði! hahaha

Þess má geta að þessi mynd var valin hér inn vegna þess að þetta er sannkölluð heimildarmynd, fyrsta og eina skiptið sem ég hef farið á skíði! hehe

 

 Þetta eru semsagt ég og Magga Einars á skíðum í 7.bekk :)


» 16 hafa sagt sína skoðun

12.12.2005 12:28:06 / maren

Getraun dagsins..

Hvað er rétta svarið við þessari spurningu:

"Ertu að hugsa það sem ég er að hugsa?"

Vegleg verðlaun í boði :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.12.2005 11:35:01 / maren

Kitl

Ása kitlaði mig.. þá neyðist maður til að setja inn færslu ;)

7 hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:

1 – Eignast börn, helst 3
2 – Ferðast til allra heimsálfanna
3 – Búa í útlöndum
4 – Læra á hljóðfæri (kannski svolítið seint í rassinn gripið hehe)
5 – Fara á tónleika með öllum uppáhalds hljómsveitunum/tónlistarmönnunum mínum
6 – Klára að mennta mig
7 – Leyndó ;)

7 hlutir sem heilla mig við hitt kynið:
1 – Augun
2 – Hendurnar
3 – Húmor (sérstaklega fyrir sjálfum sér)
4 – Brosið
5 – Einlægni
6 – Metnaður og ákveðni
7 – Skoðanir á hlutunum (þótt þær séu ekki þær sömu og mínar hehe)

7 hlutir sem ég get ekki gert:
1 – Flautað
2 – Drukkið kaffi
3 – Sært fólk vísvitandi
4 – Verið ljóshærð (prófaði einu sinni í 2 mínútur.. það var hræðingur)
5 – Borðað tómat
6 – Verið dugleg í ræktinni
7 – Safnað peningum

7 hlutir sem ég get gert:
1 – Lært (forréttindi að mínu mati)
2 – Elskað
3 – Eldað
4 – Hlegið og brosað (líka í gegnum tárin)
5 – Prjónað peysur :)
6 – Haldið uppi stuði á balli.. úje
7 – Bundið hnút á dót (t.d. lakkrísreim) með tungunni (sá það í Twin Peaks þegar ég var lítil og fannst það svo ótrúlega smart að ég æfði mig þangað til það tókst hahaha)

7 karlmenn sem heilla mig:
1 – Jude Law
2 - Jesse Metcalfe
3 – Jeff Buckley

4 - Jesús Kristur
5 – Josh Holloway
6 – Jared Leto
7 – Josh Hartnett

 7 orð (orðasambönd) sem ég segi oft:
1 – Jesús (stundum Jemundur, Pétur og Páll í staðinn)
2 – Agalega fínt
3 – Smart (í kaldhæðnistón)
4 – Djók (Ásu syndrome hehe)
5 – Gleymdu því!
6 – Spes
7 - Aumingi

 

Ég kitla: Söru, Dodda og Mikka

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

09.12.2005 22:09:50 / maren

Hinn sanni jólaandi


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.12.2005 18:42:36 / maren

Hálfnuð!

Þá er maður bara hálfnaður með prófin!

Tvö eftir, þriðjudag og fimmtudag og eftir það verður það bara hið ljúfa líf fram að jólum, allavega svona að mestu leyti.. verð eitthvað aðeins að vinna líka :)

Hlakka til að: fara að kaupa jólagjafir, labba laugarveginn í snjónum (sem byrjar að falla um leið og ég verð búin í prófunm).. baka fleiri hnetusmjörskökur með jólalögin á fullu undir.. fá mér svo heitt súkkulaði og smákökur.. hitta Rakel mína sem kemur daginn fyrir Þorlák.. auðvitað að hitta aðra vini.. og síðast en ekki síst að vera í faðmi fjölskyldunnar :)

Mmmm það er bara vika í þetta :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti